Collector
Manchester City með stórsigur á Chelsea | Collector
Manchester City með stórsigur á Chelsea
Fréttastofa RÚV

Manchester City með stórsigur á Chelsea

Manchester City gerði góða ferð til Lundúna í dag og vann Chelsea 0-3 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Nico O'Reilly City yfir eftir rúmar 5 mínútur í þeim síðari. Næsta marks var ekki lengi að bíða og Marc Guehi bætti við marki á 57. mínútu. Tíu mínútum eftir annað markið missti Chelsea boltann svo á slæmum stað og Jeremy Doku nýtti sér það og kom City í 3-0. Nico O'Reilly fagnar marki sínuAP / Ian Walton Það urðu lokatölurnar og minnkaði City forskot Arsenal í 6 stig og á leik til góða. Arsenal og City mætast í Lundúnum næstu helgi.

Go to News Site