Fréttastofa RÚV
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skammtímaefnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnist helst fyrirtækjum og ferðamönnum en ekki þeim sem mest þurfi á að halda. Sólveig segir að aðgerðirnar hafi komið flatt upp á hana. „Við vorum að funda í trúnaðarráði Eflingar þegar við fengum fregnir af því að það væri búið að boða til blaðamannafundar um aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Við höfðum ekki haft neina vitneskju um það að svo ætti að vera og höfðum enga vitneskju um það hvað ætti að fara að kynna,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir sem telur undarlegt að stéttarfélagið hafi ekki verið haft með í ráðum. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru kynntar á föstudag og eru þríþættar: Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24 prósentum í 11, aukið verður við vöktun á verðlagningu og hleðslustöðvum fjölgað. „Við vorum ekki að kalla eftir aðgerðum eins og þessum,“ segir Sólveig. Fremur hafi Efling kallað eftir aðgerðum sem miði að stöðu verka- og láglaunafólks. „Við höfum líka verið að leggja til aðgerðir sem kosta mjög lítið,“ segir hún. Kallað hafi verið eftir leiguþaki og bremsu á leiguverð, en einnig aðgerðum gegn launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum. „Við viljum fá sektarákvæði til að uppræta þá miklu skömm sem fær að grassera hér á íslenskum vinnumarkaði og svo mætti áfram telja,“ segir hún. „En stjórnvöld hafa ákveðið þess í stað að taka marga milljarða úr ríkissjóði, milljarða sem á endanum koma væntanlega fyrst og fremst til íslenskra fyrirtækja og ferðamanna og að minnstu leyti til þeirra sem þurfa mest á aðstoð að halda.“ Sólveig gagnrýnir þá einnig það sem hún segir einu aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrir verka- og launafólk sem sé breyting á atvinnuleysisbótakerfinu. „Með þeim hætti að bætur séu skertar verulega, bótatíminn sé styttur verulega og ávinnslutíminn sé lengdur verulega,“ segir hún. „Þetta er auðvitað mjög sérstök aðgerð núna þegar atvinnuleysi er að aukast, atvinnuleysi sem fyrst og fremst virðist bitna á aðfluttu verkafólki.“
Go to News Site