Fréttastofa RÚV
Að minnsta kosti fjögur sveitarfélög hafa boðið upp á frístundastyrk fyrir eldri borgara með góðum árangri. Ljóst er að fljótlega munu fleiri bætast í hópinn. Akureyrarbær samþykkti á dögunum að veita eldri borgurum frístundastyrk. Feta þeir þar með í fótspor Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Voga. Markmiðið með styrknum er að styðja eldri borgara til þátttöku í heilsueflandi íþrótta- og tómstundastarfi. „Okkur finnst það mjög gott að sveitarfélög séu að taka upp frístundarstyrk til þess að hvetja fólk til hreyfinga og tómstunda, þannig þetta er mjög jákvætt skref,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara. Vel hefur gengið í öðrum sveitarfélögum að mati Björns: „Þetta hefur gengið yfirleitt mjög vel. Sérstaklega nefni ég Reykjanesbæ og Voga sem hafa verið með þetta ótekjutengt. Þetta hefur gengið mjög vel og hefur gert mjög mikið í því að efla vitund manna og líka það að taka þátt í þessu. Það er alltaf spurning með þegar menn eru að tekjutengja þessa hluti, hvort það nái eins góðum árangri en ella,“ segir Björn og telur að svona fyrirbyggjandi aðgerðir geti létt á heilbrigðiskerfinu „Það er bara heilsusamlegt og það hjálpar til í sambandi við heilbrigðiskerfið. Það er minni þungi á því ef menn hugsa vel um sína heilsu.“ Gæti orðið kosningamál í vor Þetta er meðal þess sem brennur á eldra fólki í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og telur Björn þetta verða eitt af kosningamálum þess hóps. „Já ég tel það, eldri borgurum fjölgar, þetta er mismunandi hópur og það er nauðsynlegt að menn hreyfi sig og annað. Ég held að þetta sé, hvað á maður að segja, hvatning til þess að hreyfa sig meira og gera eitthvað í sínum málum“
Go to News Site