Collector
Glænýjar kannanir gera ráð fyrir öruggum sigri Magyar | Collector
Glænýjar kannanir gera ráð fyrir öruggum sigri Magyar
Fréttastofa RÚV

Glænýjar kannanir gera ráð fyrir öruggum sigri Magyar

Nýjustu kannanir sem birtar voru eftir að kjörstöðum í Ungverjalandi lokaði í dag spá fyrir um öruggan sigur Péter Magyar, leiðtoga Tisza-flokksins. Reynist það rétt er 16 ára valdatímabili Viktors Orbáns, forsætisráðherra Ungverjalands, lokið. Kannanir spá því að Tisza-flokkurinn fái um 57,1% af atkvæðum. Það myndi færa honum 135 þingsæti, tveimur fleiri en flokkurinn þarf til að fá tvo þriðju meirihluta í þinginu. Fidesz-flokki Orbán er spáð 37,1% af atkvæðum. Kannanirnar eru ekki hefðbundnar útgönguspár en hafa áður spáð fyrir um niðurstöður kosninga með nokkurri nákvæmni. Fréttin verður uppfærð.

Go to News Site