Fréttastofa RÚV
Ísland er komið á EM kvenna í handbolta eftir stórsigur á Portúgal í dag, 32-24. Sandra Erlingsdóttir, sem skoraði 4 mörk í dag, var ánægð með sigurinn: „Þetta var geggjað og maður var alveg með bilaða trú á þessu.“ Það gekk lítið upp hjá Íslandi í byrjun leiks og lenti liðið 1-5 undir. „Við tókum leikhlé og náðum svo að slökkva alveg á þeim í fimm-einn vörninni sem var frábær hjá okkur í dag. Það var mjög mikill léttir að við komumst inn í leikinn aftur.“ Ísland er á leið á fjórða stórmótið í röð. „Það er bara eiginlega frábært. Svo geggjað fyrir kvennahandboltann á Íslandi. Maður sér strax núna að fleiri stelpur eru að komast út [í atvinnumennsku]. Það var alveg helvítis hark að komast út á þeim tíma þegar það var ekki staðan en frábært að nú séu fleiri leikmenn að fá stærri tækifæri.“
Go to News Site