Collector
Fagnar boðaðri lækkun og treystir að hún skili sér til neytenda | Collector
Fagnar boðaðri lækkun og treystir að hún skili sér til neytenda
Fréttastofa RÚV

Fagnar boðaðri lækkun og treystir að hún skili sér til neytenda

Framkvæmdastjóri FÍB býst við að lækkun á bensínverði hjálpi til við að draga úr verðbólgu. Lækkun á heimsmarkaðsverði á hráolíu síðustu daga eigi eftir skila sér til neytenda hér heima. Ríkisstjórnin kynnti á föstudag tímabundnar aðgerðir til að draga úr verðbólgu. Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24% í 11% og olíufélögin verða skylduð með lögum til að skila verðlækkunum til neytenda. Framkvæmdastjóri FÍB fagnar boðaðri lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti og er bjartsýnn á að verðlækkanir skili sér til neytenda. „Við fögnum því að það sé farin þessi leið,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. „Við lækkun eldsneytis þá mun það skila um 0,3% lækkun á vísitölunni.“ „Það er allavega ljóst að þessar gríðarlegu hækkanir sem hafa verið að eiga sér stað vegna þessa ófremdarástands í Íran er eitthvað sem íslensk stjórnvöld og okkar hagstjórn ræður ekkert við til lengri tíma og hefur engin áhrif á. Þetta eru þó allavega áhrif til að slá á þetta,“ segir Runólfur. Þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði á hráolíu í liðinni viku hefur verð á bensíni hér heima haldið áfram að hækka. „Við skulum nú gefa markaðnum einhverja daga,“ segir Runólfur. Hann bendir á að hækkanir hafi líka oft verið lengur að skila sér út í verðlagið hér heima. Fólk sem fréttastofa ræddi við á förnum vegi í dag var ánægt með boðaðar verðlækkanir á eldsneyti en sumir telja fleiri aðgerða þörf.

Go to News Site