Fréttastofa RÚV
Fram og ÍA skildu jöfn í lokaleik fyrstu umferðar Bestu deildar karla, 3-3. Markalaust var í hálfleik en Atli Þór Jónasson kom Frömurum yfir á 48. mínútu. Það tók Viktor Jónsson þó einungis fjórar mínútur að jafna og á 52. mínútu voru Skagamenn komnir 1-2 yfir eftir mark Markúsar Páls Ellertssonar. Markús Páll, sem er uppalinn Framari, skoraði annað mark sitt á 61. mínútu. Sigurjón Rúnarsson minkaði muninn á 76. mínútu og Kennie Chopart jafnaði í uppbótartíma. Skagamenn fagna marki ViktorsRÚV / Mummi Lú Staðan í deildinni . Önnur umferð deildarinnar verður öll spiluð næsta föstudag.
Go to News Site