Fréttastofa RÚV
Ríkisstjórn Írlands tilkynnti eftir neyðarfund í dag að skattur á bensíni og dísilolíu yrði lækkaður tímabundið. Síðan á þriðjudag hafa bændur og vöruflutningabílstjórar þar á landi mótmælt hækkandi eldsneytisverði í kjölfar stríðsins í Mið-Austurlöndum. „Sem ríkisstjórn heyrum við í ykkur,“ sagði Simon Harris fjármálaráðherra Írlands á blaðamannafundi. „Við höfum brugðist við og við erum að grípa til frekari aðgerða í dag.“ Ríkisstjórnin tilkynnti tíu senta lækkun á lítrann (um 14 ISK) af bæði dísilolíu og bensíni þangað til í júlí. Þá verður fyrirhugaðri hækkun á kolefnisskatti frestað frá maí fram að fjárlögum í október. Mótmæli síðustu daga þróuðust úr hægfara bílalestum á hraðbrautum og takmörkun á aðgengi að fjölförnustu götum Dyflinnar yfir í að mótmælendur lokuðu að hluta til einu olíuhreinsunarstöð Írlands og takmörkuðu aðgengi að að minnsta kosti tveimur öðrum eldsneytisbirgðastöðvum. Mótmælin stóðu enn að hluta til yfir í dag, sjötta daginn í röð. Ríkisstjórnin biðlaði til almennings fyrr í dag að hamstra ekki eldsneyti en dælur á mörgum bensínstöðvum voru orðnar tómar. Eldsneytisskortur hafi áhrif á neyðarþjónustu Lögreglan beitti í gær, með stuðningi írska hersins, óeirðasveitum til að aflétta vegatálma við Whitegate, einu olíuhreinsunarstöð Írlands. Á fréttaveitunni AFP er haft eftir Justin Kelly, lögreglustjóra í írsku lögreglunni, að aðgerðin hafi verið síðasta úrræðið. Kelly segir það að stöðva olíudreifingu frá Whitegate hafa verið ólögleg mótmæli fólks sem hafi verið staðráðið í að „halda landinu í gíslingu“. Lokun á mikilvægum innviðum þjóðarinnar hefði leitt til eldsneytisskorts sem hafi „bein áhrif á neyðarþjónustu eins og sjúkrahús, sjúkraflutninga og slökkvilið“, er haft eftir honum í frétt AFP.
Go to News Site