Fréttastofa RÚV
Péter Magyar leiðtogi Tisza-flokksins flutti sigurræðu fyrir gríðarlegum mannfjölda í Búdapest fyrir skömmu. Búið er að telja 98 prósent atkvæða í þingkosningunum í Ungverjalandi. Ljóst er að Tisza-flokkur Magyars fer með stórsigur. Tisza-flokkurinn fær 138 þingsæti en Fidesz-flokkur Viktors Orbáns 55. Róttæki hægriflokkurinn Mi Hazank fær 6 þingsæti. „Tisza og Ungverjaland unnu þessar kosningar,“ sagði Magyar við mikil fagnaðarlæti.„Saman frelsuðum við Ungverjaland og losuðum okkur við Orbán-stjórnina.“ Viktor Orbán, sem hefur verið forsætisráðherra Ungverjalands síðustu sextán ár játaði sig sigraðan um klukkan hálf átt í kvöld, þegar búið var að telja um sextíu prósent atkvæða. Það gerði hann í ræðu til stuðningsmanna sinna þar sem hann sagði niðurstöður kosninganna skýrar og sársaukafullar. „Ástin sigrar alltaf“ Með 138 þingsætum tryggir Tisza-flokkurinn sér sterkan tveggja þriðju meirihluta á ungverska þinginu. „Þetta þýðir friðsamleg og skilvirk valdaskipti,“ sagði Magyar. Hann segir Orbán-stjórnina hafa beitt öllum sínum krafti til að reyna að stöðva Tisza og heldur því fram að leyniþjónustan hafi verið notuð gegn flokki hans. Með sigri flokksins hafi sannleikurinn sigrað lygina. „Ástin sigraði í dag, því ástin sigrar alltaf,“ sagði Magyar og þakkaði Ungverjum fyrir að hafa ekki verið hræddir.
Go to News Site