Collector
63.000 gátu ekki kosið á kjördegi | Collector
63.000 gátu ekki kosið á kjördegi
Fréttastofa RÚV

63.000 gátu ekki kosið á kjördegi

Keiko Fujimori er talin sigurstrangleg í forsetakosningunum.EPA / Renato Pajuelo Um 63.000 kjósendur bíða þess enn að kjósa í þing- og forsetakosningum í Perú. Kjósendurnir gátu ekki kosið á kjördegi í gær vegna skorts á kjörkössum og öðrum kosningagögnum á 15 kjörstöðum í höfuðborginni Lima. Kjörstaðir verða opnir áfram í dag vegna þessara mistaka. Alls eru um 27 milljónir kjósenda á kjörskrá og völdu þeir á milli 35 forsetaframbjóðenda. Keiko Fujimori er spáð sigri, en hún er ein fjögurra frambjóðenda sem fengu flest atkvæði. Útlit er fyrir að kosið verði milli þeirra í annarri umferð forsetakosninganna sem verða í júní. Fujimori er dóttir fyrrum forseta landsins Alberto Fujimori sem var forseti Perú frá 1994-2000.

Go to News Site