Vísir
Í kvöldfréttum RÚV laugardagskvöldið 11. apríl sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orðrétt: „Við erum ekki að kjósa um inngöngu.“ Hvað erum við þá að kjósa um, Kristrún? Aðlögun að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess sem við ætlum okkur síðan ekki að ganga inn í? Eða eins og segir í greinargerðinni með þingsályktunartillögu ríkisstjórnar hennar um þjóðaratkvæðið í lok ágúst: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hefur nokkur þjóð farið í slíka vegferð án þess að ætla sér að ganga í ESB?
Go to News Site