Collector
Stofnaði reikning í nafni fyrrverandi og safnaði upp rúmri milljón í yfirdrátt | Collector
Stofnaði reikning í nafni fyrrverandi og safnaði upp rúmri milljón í yfirdrátt
Fréttastofa RÚV

Stofnaði reikning í nafni fyrrverandi og safnaði upp rúmri milljón í yfirdrátt

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt sem beindist gegn fyrrverandi eiginkonu hans og tengdaföður. Lögreglan á Suðurnesjum gaf ákæruna út og birti hana í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hafðist uppi á manninum. Hann er ákærður fyrir fjárdrátt og til vara umboðssvik fyrir að hafa stofnað bankareikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar. Að því er fram kemur í ákæru komst maðurinn yfir rafræn skilríki konunnar og notaði þau án hennar vilja og vitundar til að stofna reikninginn. Hafandi gert það borgaði hann Heimstaden tvo reikninga upp á 5.259 krónur en var þó stórtækastur í því að stofna yfirdrátt og millifæra á sjálfan sig 1.141.237 krónur. Lögregla segir að með þessu hafi maðurinn dregið sér fé af reikningum konunnar, kastað eign sinni á fjármuni hennar og notað þá heimildarlaust í sjálfs síns þarfir. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa haft fé af tengdaföður sínum fyrrverandi. Það á hann að hafa gert með því að taka út 377.000 krónur í hraðbönkum eftir að hann komst yfir greiðslukort mannsins og öryggisnúmer þeirra. Í ákæru segir að hann hafi notfært sér veikindi tengdaföðurins fyrrverandi og yfirburðastöðu sína gagnvart honum.

Go to News Site