Fréttastofa RÚV
Hæstiréttur hafnaði beiðni Símans sem vildi fá að áfrýja dómi Landsréttar um sektargreiðslu vegna sölunnar á Mílu, sem þá var dótturfélag Símans. Seðlabankinn lagði 76,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann þar sem hann þótti hafa brotið gegn lagaákvæðum um innherjaupplýsingar. Það gerðist þegar fyrirtækið bauð fjórum hugsanlegum kaupendum að senda inn skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í Mílu. Seðlabankinn taldi að við þetta hefðu orðið til innherjaupplýsingar sem hefði átt að birta opinberlega eða fresta í samræmi við ákvæði laga. Síminn höfðaði mál til að fá úrskurðinn ógiltan en tapaði í héraði og Landsrétti. Síminn höfðaði mál en tapaði bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti.RÚV / Ragnar Visage
Go to News Site