Collector
Fólk undir þrítugu neikvæðast gagnvart öðrum ferðamátum en einkabílnum | Collector
Fólk undir þrítugu neikvæðast gagnvart öðrum ferðamátum en einkabílnum
Fréttastofa RÚV

Fólk undir þrítugu neikvæðast gagnvart öðrum ferðamátum en einkabílnum

Fólk á aldrinum 30 ára og yngri er neikvæðast fyrir því að nota aðra samgöngumáta en einkabílinn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Vörðu, sem er rannsóknarstofnun á vegum ASÍ og BSRB, um svokölluð réttlát umskipti í samgöngum. Skýrslan byggist á könnun sem var gerð í júní á síðasta ári. Tæplega 25 þúsund svöruðu könnuninni og búa flestir svarenda á höfuðborgarsvæðinu. Í henni er rýnt það hvers vegna launafólk velur ákveðna samgöngumáta fram yfir aðra. Hvað eru réttlát umskipti? Réttlát umskipti vísa til þess að breytingar á hagkerfum og samfélögum þurfi að vera félagslega sanngjarnar og tryggja að byrðarnar falli ekki þyngst á þá hópa sem veikast standa. Í könnuninni voru þátttakendur búsettir á höfuðborgarsvæðinu meðal annars spurðir hversu jákvæðir þeir væru gagnvart því að nota annars konar samgöngumáta en einkabíl. Samkvæmt niðurstöðum hennar sögðust fjórir af hverjum tíu vera mjög eða frekar jákvæðir fyrir því að nota annars konar samgöngumáta en einkabíl, þriðjungur mjög eða frekar neikvæður og fjórðungur hvorki né. Langur ferðatími algengasta ástæðan Yngsti aldurshópurinn, 30 ára og yngri, er sá eini þar sem hærra hlutfall er mjög eða frekar neikvætt fyrir því að nota aðra samgöngumáta en einkabílinn heldur en þau sem eru jákvæð gagnvart því. Í yngsta hópnum eru 43% svarenda neikvæð, 35% jákvæð og 22% segjast hvorki jákvæð né neikvæð. Þessu er öfugt farið í öllum öðrum aldurshópum þar sem fleiri segjast jákvæðir gagnvart því að nota annars konar samgöngumáta en einkabílinn. Þegar svarendur í hópi þrjátíu ára og yngri voru spurðir um ástæður þess að þeir væru neikvæðir gagnvart öðrum samgöngumáta en einkabíl nefndi hæst hlutfall svarenda að ferðatími væri of langur. Aðrar algengar ástæður sem þátttakendur nefndu voru að aðrir samgöngumátar en einkabílinn dragi úr lífsgæðum, að almenningssamgöngur væru ekki áreiðanlegar og að kostnaður við almenningssamgöngur væri hár.

Go to News Site