Collector
Fangelsismálastjóri tekur undir með fangavörðum um óviðunandi ástand | Collector
Fangelsismálastjóri tekur undir með fangavörðum um óviðunandi ástand
Fréttastofa RÚV

Fangelsismálastjóri tekur undir með fangavörðum um óviðunandi ástand

Fangelsismálastjóri tekur undir með Fangavarðafélagi Íslands um að ástandið í fangelsum landsins sé óviðunandi. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að fangelsin séu yfirfull og ekki hægt að tryggja öryggi fanga og starfsfólks. „Það er hægt að taka undir þessar áhyggjur og í sjálfu sér ekkert hægt að rengja það sem þarna kemur fram. Þetta er allt saman satt og rétt,“ segir Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri. Vegna kröfu um að allt pláss sé nýtt dvelja fangar í klefum þar sem kallkerfi virkar ekki. Birgir tekur undir að það sé óviðunandi og segir að það verði að finna lausn til framtíðar. „Þetta er náttúrulega bara hluti af stöðunni á aðbúnaði við fangelsið Litla-Hraun sem er bara komið mjög til ára sinna.“ Í yfirlýsingu vekur Fangavarðafélagið einnig athygli á því að vegna plássleysis gisti almennir fangar einangrun en séu á yfirfullri almennri deild yfir daginn. Birgir segir það stafa af miklum fjölda gæsluvarðhaldsfanga. „Við höfum ekki séð í annan tíma eins marga gæsluvarðhaldsfanga eins og nú er og þetta hefur svona smám saman aukist síðustu ár. Það sem við stöndum í rauninni frammi fyrir er það að þetta sé kannski svona illskárri kostur heldur en að heldur en að vista í gæsluvarðhald í fangageymslum lögreglunnar,“ segir Birgir. „Og þetta hefur orðið ofan á að gera þetta svona en þetta er með engum hætti viðunandi. Og í rauninni er það töluvert stórt öryggismál. Það er ekki alls ekki góð latína á að yfirfylla fangelsið með þessum hætti þannig að það sé ekki borð fyrir báru að bregðast við ef eitthvað kemur upp inn á fangelsanna. Þetta er bara staðan því miður, hún er svona og hefur verið svona í töluverðan tíma. Og við höfum svo sem vakið athygli á því og en það eru engar skyndilausnir í sjónmáli.“

Go to News Site