Collector
Fór til Ungverjalands til að kjósa og vonast eftir bjartari framtíð | Collector
Fór til Ungverjalands til að kjósa og vonast eftir bjartari framtíð
Fréttastofa RÚV

Fór til Ungverjalands til að kjósa og vonast eftir bjartari framtíð

„Mér fannst skylda mín að taka flugvél til Ungverjalands, fljúga yfir Norður-Atlantshafið. Ég vona að við fáum bjartari framtíð og að margt breytist í mennta- og heilbrigðiskerfinu, sem og í hagkerfinu fyrir næstu kynslóð og líka fyrir foreldra okkar og fjölskylduna,“ sagði Mónika Pozár í viðtali við Björn Malmquist fréttamann í gær. Hún er ökuleiðsögumaður á Íslandi og er frá Ungverjalandi. Líkt og fleiri Ungverjar á Íslandi fór hún til heimalandsins til að kjósa í þingkosningunum í gær. Mikil fagnaðarlæti brutust út í gærkvöld þegar ljóst var að Tisza-flokkurinn hefði unnið stórsigur á flokki Viktors Orban sem hefur verið við völd í 16 ár og fólk þusti út á götur höfuðborgarinnar, þeirra á meðal var Mónika sem sendi fréttastofu myndbandið hér fyrir neðan. Þúsundir Ungverja þustu út á götur í gærkvöld þegar ljóst varð að Tisza-flokkurinn hefði unnið stórsigur. Þeirra á meðal var Monika Pozár sem býr á Íslandi en lagði upp í ferð til Ungverjalands til að kjósa. Hún sagði þá tilfinningu að kjósa í gær hafa verið mjög góða. „Þetta var í fyrsta sinn í mörg ár sem mér fannst að eitthvað myndi breytast.“ Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun Björns Malmquist um kjördaginn og viðtal við Moniku í sjónvarpsfréttum í gærkvöld. Þúsundir Ungverja þustu út á götur í gærkvöld þegar ljóst varð að Tisza-flokkurinn hefði unnið stórsigur. Þeirra á meðal var Monika Pozár sem býr á Íslandi en lagði upp í ferð til Ungverjalands til að kjósa.

Go to News Site