Collector
Dagur og Þórdís Kolbrún byrja með hlaðvarp um alþjóðamál | Collector
Dagur og Þórdís Kolbrún byrja með hlaðvarp um alþjóðamál
Fréttastofa RÚV

Dagur og Þórdís Kolbrún byrja með hlaðvarp um alþjóðamál

Hlaðvarpið Flekaskil hefur göngu sína í dag. Umsjónarmenn þess eru þingmennirnir Dagur B. Eggertsson úr Samfylkingunni og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir úr Sjálfstæðisflokki. Hann er í stjórnarmeirihlutanum en hún í stjórnarandstöðu. „Við Þórdís Kolbrún höfum talað um það í nokkurn tíma að setja í loftið hlaðvarp sem myndi reyna að ná utan um þessar gríðarlegu breytingar sem eru að verða í alþjóðamálum sem hafa margar áhrif beint og óbeint á Ísland. Það eru Bandaríkin og Trump, Evrópa, varnar- og öryggismál og svo framvegis og framvegis,“ segir Dagur. „Við erum náttúrulega kannski sitthvorum megin í pólitíska litrófinu en erum líka sammála um að það sé gagn að því að allavega reyna að tala um þessi mál hreinskilnislega á yfirvegaðan hátt til þess að reyna að brúa einhverjar sprungur sem eru að myndast í samfélaginu og heiminum.“ Stefnt er að því að nýr þáttur hlaðvarpsins komi út vikulega. Athygli vekur að stjórnendur hlaðvarpsins koma ekki aðeins hvort úr sínum flokknum heldur standa þau hvort sínum megin við víglínu stjórnar og stjórnarandstöðu. „Í öllum þroskuðum lýðræðissamfélögum er það æskilegt að í stórum málum sé sæmileg sátt um hlutina. Til þess að það myndist sátt þarf að myndast skilningur og til þess þarf samtal. Við erum að reyna að skilja heiminn og þær breytingar sem eru að verða í honum og tala um það. Við vonumst til þess að fólk hlusti og verði í sambandi og þetta verði upphafið að einhverri breiðari umræðu, öfgalausri sem byggi á rökum.“ Ekki náðist í Þórdísi Kolbrúnu við vinnslu fréttarinnar.

Go to News Site