Collector
Sjö sóttu um stöðu skólastjóra Víðistaðaskóla | Collector
Sjö sóttu um stöðu skólastjóra Víðistaðaskóla
Fréttastofa RÚV

Sjö sóttu um stöðu skólastjóra Víðistaðaskóla

Sjö sóttu um stöðu skólastjóra í Víðistaðaskóla. Meðal umsækjenda er aðstoðarskólastjóri skólans. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að verið sé að vinna úr umsóknum. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí eða eftir nánara samkomulagi. Umsækjendur um stöðu skólastjóra voru eftirfarandi: Arnór Heiðarsson, forstöðumaður Dagný Vilhelmsdóttir, framhaldsskólakennari Guðmundur Stefán Gunnarsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, sviðsstjóri Hjördís Bára Gestsdóttir, aðstoðarskólastjóri Íris Anna Steinarrsdóttir, skólastjóri Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, aðstoðarskólastjóri Skólastjóri Víðistaðaskóla hvarf til annarra starfa í mars eftir að starfsfólk gerði alvarlegar athugasemdir við störf hennar í nóvember.

Go to News Site