Collector
Britney Spears farin í meðferð | Collector
Britney Spears farin í meðferð
Fréttastofa RÚV

Britney Spears farin í meðferð

Britney Spears hefur verið í sviðsljósinu frá táningsaldri.EPA Bandaríska söngkonan Britney Spears er komin í vímuefnameðferð. Hún ákvað að leggjast inn á meðferðarstofnun af sjálfsdáðum. Þetta staðfestir talsmaður söngkonunnar í samtali við People . Söngkonan ákvað að fara í meðferð eftir að hún var handtekin vegna gruns um akstur undir áhrifum í síðasta mánuði. Þrjár vikur eru þar til ákæra á hendur Spears verður tekin fyrir í dómssal í Kaliforníu, að því er segir í frétt BBC . Þar er haft eftir talsmanni söngkonunnar að þetta verði vonandi fyrsta skrefið í átt að tímabærum breytingum sem þurfi að eiga sér stað í lífi hennar. „Vonandi fær hún þá hjálp og þann stuðning sem hún þarf.“

Go to News Site