Fréttastofa RÚV
Kylfingurinn Rory McIlroy varði titil sinn á Masters og komst þar með í fámennan hóp kylfinga. Þessi snaggaralegi Norður-Íri hefur lengi þótt afar góður. Gæði hans eru ekki umdeild. En eftir að hafa nælt í græna jakkann síðustu tvö ár er hann að fikra sig á næsta stall í golfsögunni. Hvar á hann heima í umræðunni um þá allra bestu í sögunni? Er hann skemmtilegur kylfingur? Eða skemmtilega leiðinlegur? Munu flóðgáttir opnast hjá honum núna í risatitlasöfnun? Golfsérfræðingurinn Jón Júlíus Karlsson fór yfir málið. „Þetta er mikið afrek. Það eru bara þrír aðrir kylfingar sem hafa unnið þetta mót tvisvar í röð: Tiger Woods, Jack Nicklaus og Sir Nick Faldo. Þannig að hann kemur sér þarna í röð með allavega tveimur af þeim allra bestu. Það eru fáir sem hafa leikið þetta eftir.“ „Þetta er stórt og mikið afrek fyrir Rory sem þurfti lengi að bíða eftir að fá að græna jakkann og núna kemur hann tvö ár í röð.“ Flóðgáttir opnast? Rory vann Masters á síðasta ári eftir 17 ára bið. Erum við að sjá flóðgáttir opnast hjá honum? Jón Júlíus telur að hann hafi spilað pressulaus í ár. Þá telur hann að Rory bæti við þriðja jakkanum á næstu árum. „Það er eins og það hafi verið þungur fargi af honum létt. Að ná loksins að vinna mótið í fyrra. Hann spilaði í ár ekki undir mikilli pressu, allavega ekki eins mikilli og hefur verið undanfarin ár. „Honum líður mjög vel á Augusta National. Hann þekkir þennan völl út og inn og þetta hentar hans leik vel. Þannig að ég gæti trúað að hann myndi bæta jafnvel þriðja jakkanum við á næstu árum. Það kæmi mér ekki á óvart.“ Heima meðal þeirra bestu? Rory er nú kominn með sex risatitla og er þar 12. í röðinni. Það er þó enn nokkuð langt í Jack Nicklaus og Tiger Woods sem eru með 18 og 15. Er hann farinn að kroppa í umræðuna um að vera meðal þeirra bestu í sögunni? Jón Júlíus telur Rory enn eiga eitthvað í land þar. „Hann á svolítið langt í Jack Nicklaus og Tiger en allavega miðað við þá kylfinga sem eftir 2000 þá hlýtur hann að vera einn sá besti ásamt Scheffler.“ „Nei, ég myndi nú halda að hann eigi svolítið langt í land með að vera talinn einn af þeim allra bestu. En hann er einn besti Evrópuleikmaður sögunnar, klárlega.“ Listinn yfir flesta risatitla Rory er nú í 12. sæti yfir þá sem hafa unnið flesta risatitla í sögunni. Hann er nú með sex alls en Jack Nicklaus trónir á toppnum með 18. Allir fyrir ofan Rory hafa líklega sungið sitt síðasta þegar kemur að risatitlum en einungis Mickelson og Tiger Woods eru enn að. Jack Nicklaus – 1962–1986 – 18 titlar Tiger Woods – 1997–2019 – 15 titlar Walter Hagen – 1914–1929 – 11 titlar Ben Hogan – 1946–1953 – 9 titlar Gary Player – 1959–1978 – 9 titlar Tom Watson – 1975–1983 – 8 titlar Harry Vardon – 1896–1914 – 7 titlar Bobby Jones – 1923–1930 – 7 titlar Gene Sarazen – 1922–1935 – 7 titlar Sam Snead – 1942–1954 – 7 titlar Arnold Palmer – 1958–1964 – 7 titlar Lee Trevino – 1968–1984 – 6 titlar Nick Faldo – 1987–1996 – 6 titlar Phil Mickelson – 2004–2021 – 6 titlar Rory McIlroy – 2011–2026 – 6 titlar Ósanngjarnt? Óeðlilegt McIlroy spilaði völlinn gífurlega oft í aðdraganda mótsins. Hann býr í Flórída og iðulega skutlaði hann dóttur sinni í skólann áður en hann skaust í einkaþotu yfir til Augusta vallarins í Georgíu. Það er um eins og hálfs tíma flug. Gagnrýnendur hafa talið þetta ósanngjarna stöðu en Jón Júlíus telur þetta einungis vera forgangsröðun. Rory sleppti til að mynda öðrum mótum í aðdragandanum og þetta er hans fyrsti sigur á móti í ár. „Þetta er bara hans forgangsröðun. Þetta mót skiptir hann miklu máli. Hann var auðvitað í titilvörn og ber mikla virðingu fyrir klúbbnum og mótinu. Hann var að taka einkaflug nánast daglega til að undirbúa sig. Hvort það sé ósanngjarnt. Ég veit það nú ekki. Þetta er bara hans forgangsröðun.“ „Hann vill setja sinn tíma í að undirbúa sig og fórnar þá tíma í önnur mót enda hefur hann ekki verið að vinna nein önnur mót á árinu.“ Rússíbanareið og björgunaraðgerðir Leikstíll Rory er afar áhugaverður þar sem hann er nokkuð óútreiknanlegur. Þegar kemur að stórmótum reynir hann þó að leika yfirvegað, til dæmis í samanburði við kylfinga eins og DeChambeau eða Rahm. Er Rory leiðinlegur? Er Rory skemmtilegur? Eða er hann Rory skemmtilega leiðinlegur? „Það er frábært að horfa á Rory spila golf. Það er kannski aðallega að hann framkallar bæði slæm og góð högg með mjög reglulegu millibili. „Hann fer sjaldnast í gegnum heilan golfhring án þess að bjóða manni upp í smá rússíbana.“ Jón segir spilamennsku hans á Masters í ár gott dæmi um þennan rússíbana. Þegar halla fer undan fæti þarf Rory að leita í björgunaraðgerðir. „Við sjáum það bara á þessu móti. Hann leggur grunninn að sigrinum með frábærri spilamennsku á fyrstu tveimur dögunum. Svo dugar honum að spila á pari um helgina. „Það er eiginlega svona þessi eftirvænting, maður veit aldrei hvernig hann spilar. Hann spilar einhvern veginn aldrei þannig að það sé allt í toppmálum.“ „Það eru alltaf einhverjar björgunaraðgerðir hér og þar. Björgunaraðgerðir kalla þá yfirleitt á frábær högg í kjölfarið.“ Svo margt heillandi við leik hans Jón bendir einnig á að Rory sé mjög högglangur þrátt fyrir að vera ekki ýkja hár í loftinu. „Þannig að hann er mjög litríkur. Hann slær ótrúlega fallega og langt. Hann er kraftmikill miðað við að vera aðeins 1,75 metrar á hæð. Þrátt fyrir það er hann einn högglengsti kylfingur í heimi. Það er margt svo heillandi við hann. Ég allavega hrífst af leiknum hans og ég held að það vita að margir aðrir geri það,“ bætti Jón við. Baráttan við Scheffler Það má segja að Rory og Scheffler séu þeir fremstu í heiminum þessa stundina. Scheffler er afar stöðugur kylfingur og er í fyrsta sæti heimslistans. Scottie Scheffler fór í gegnum helgina á Masters skollalaus og varð þar með sá fyrsti til þess árið 1942. Er það nýi skólinn eða er leikstíll Rory einhvers konar leifar af gamla skólanum? „Scheffler er auðvitað ótrúlega stöðugur og auðvitað langefstur á heimslistanum. Það sýnir þann stöðugleika sem er í hans leik. Scheffler er raunverulega einum, tveimur höggum frá því að vinna þetta mót. Hann er ótrúlega seigur og bjargar sér oft ótrúlega vel. Hann minnir mann stundum á Tiger þegar hann er að bjarga sér.“ „Í þessu móti skiptir máli að tapa sem fæstum höggum og gera sem minnst mistök. Rory gerði bara nóg þarna framan af helgi til þess að til þess að koma sér í góða stöðu. Scheffler var of langt frá honum. Hann var tólf höggum frá honum fyrir helgina og það munaði að lokum einu höggi,“ sagði Jón að lokum. Vinkillinn er greinaflokkur þar sem leitast er eftir að segja áhugaverðar íþróttasögur frá hinum ýmsu sjónarhornum.
Go to News Site