Fréttastofa RÚV
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrum ráðherra, hefur sagt sig úr Flokki fólksins. Þetta var tilkynnt við upphaf þingfundar sem hófst klukkan 15. Guðmundur Ingi, sem var auk þess varaformaður flokksins, situr áfram sem þingmaður utan flokka og tekur hann fram í yfirlýsingu að hann muni áfram styðja við ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Guðmundar Ingi segir að ástæða úrsagnarinnar sé trúnaðarbrestur. Guðmundur Ingi hefur verið í lykihlutverki innan Flokks fólksins frá því hann var kjörinn á þing 2017. Hann var þingflokksformaður um árabil og tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra þegar Ásthildur Lóa Þórsdóttir sagði af sér. Guðmundur Ingi fór í veikindaleyfi fyrir jól og ákvað Inga Sæland þá að gera breytingar á ráðherraliði sínu þar sem hún tók við embætti Guðmundar Inga og Ragnar Þór Ingólfsson varð félags- og húsnæðismálaráðherra. Guðmundur Ingi lýsti yfir óánægju með þær breytingar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins segir í yfirlýsingu að það sé mikil eftirsjá af Guðmundi Inga. Hún þakkaði honum gott samstarf og óskaði velfarnaðar. Yfirlýsing Guðmundar Inga: Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun. Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka. Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka. Ástæða þess að ég segi skilið við Flokk fólksins á þessum tímapunkti er trúnaðarbrestur sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig frekar um þessa ákvörðun. Ég vil þakka félögum mínum í Flokki fólksins fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Saman höfum við náð miklum árangri í veigamiklum baráttumálum og þar vil ég ekki síst nefna kjör öryrkja og aldraðra og áherslur okkar í velferðarmálum. Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga. Yfirlýsing Ingu Sæland: Það er mikil eftirsjá af Guðmundi Inga Kristinssyni sem hefur fylgt Flokki fólksins frá upphafi en hefur nú sagt sig úr flokknum. Hann hefur alla tíð verið óþreytandi baráttumaður fyrir öllum okkar helstu baráttumálum eins og bættum kjörum eldri borgara og öryrkja. Nú þegar Flokkur fólksins er kominn til áhrifa með þátttöku í ríkisstjórn til að fylgja eftir okkar baráttumálum, er því sárt að hann skuli kjósa að starfa einn utan þingflokka á Alþingi. Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað. Ég þakka Guðmundi Inga fyrir náið og gott samstarf síðast liðin áratug og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.
Go to News Site