Fréttastofa RÚV
Símafyrirtækið Nova lítur á það sem samfélagslega ábyrgð sína að koma í veg fyrir að fólk verji of miklum tíma í símanum. Um það snýst ný auglýsingaherferð þar sem áhorfendur fylgjast með manni sem lítur aldrei upp af banana sem hann heldur á og lendir í alls kyns vandræðum, þó hann taki varla sjálfur eftir því. „Þetta er fáránleg hegðun þannig að við ákváðum að beita fáránleikanum sjálfum í herferðinni,“ segir Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova, um auglýsinguna. „Við sjáum það sem okkar ábyrgð að vekja fólk til vitundar um þetta því við vitum öll að þetta er hegðun sem er ekki að gera okkur gott, bæði þegar kemur að félagslegum aðstæðum og okkar eigin geðheilsu,“ segir Sigurbjörn og bætir við að það að verja of miklum tíma í símanum eigi ekki aðeins við um unga fólkið, heldur alla. Hann segir að það sé í anda Nova að ávarpa hluti á kómískan hátt og þau hafi því ákveðið að skipta símanum út fyrir banana. „Við skiptum símanum út fyrir banana til að varpa ljósi á hversu fáránlegt það er að stara allan liðlangan daginn á eitthvað.“ Einhverjum gæti þótt það furðulegt að símafyrirtæki hvetji fólk til að nota vöruna sem það selur minna. Sigurbjörn segir fleiri dæmi um að fyrirtæki noti herferðir sem þessar til að koma hugsjón sinni og vísar til þess þegar útivistarfyrirtækið Patagonia hvatti fólk til að kaupa ekki útivistarfatnað frá fyrirtækinu með það að markmiði að draga úr neysluhyggju. „Okkar saga er sú að við viljum ekki hvetja fólk til að hanga meira fyrir framan enn annan skjáinn,“ segir Sigurbjörn. Það sé meðal annars ástæða þess að fyrirtækið bjóði ekki upp á streymisveitu. „Við erum að hvetja fólk til að fara út og lifa litríkara lífi. Gerðu eitthvað skemmtilegt með vinum þínum og ekki skrolla í símanum eins og einhver banani. Eigum frekar raunverulegar samverustundir með okkar besta fólki.“
Go to News Site