Fréttastofa RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska sjóherinn granda öllum írönskum herskipum sem nálgist herkví hans við íranskar hafnir. Í færslu á Truth Social segir Trump að Bandaríkjaher hafi grandað stórum hluta af skipakosti íranska sjóhersins, alls 158 skipum. Herinn hafi þó ekki ráðist á nokkur hraðskreið árásarskip, „því við töldum þau ekki vera mikla ógn,“ skrifar forsetinn. Hann bætir því við að ef einhver þessara skipa nálgist herkví Bandaríkjahers verði þeim grandað með sömu brögðum og Bandaríkjaher hefur beitt gegn bátum meintra eiturlyfjasmyglara frá Suður-Ameríku. Í gær sagði Trump að lokað yrði fyrir umferð allra skipa til og frá Íran um Hormússund. Lokunin tók gildi klukkan 14 að íslenskum tíma. Áður höfðu Íranar lokað sundinu fyrir skipum ríkja sem þeir skilgreina sem óvinveitt. Viðræður Bandaríkjanna og Írans í Pakistan um helgina báru ekki árangur og er talið að með hótunum sínum ætli Trump að þvinga Írana til að opna sundið. Siglingaleiðin er mikilvæg fyrir olíuflutninga og eldsneytisverð hefur hækkað síðustu vikur vegna stríðsins. Ríkin sömdu um fjórtán daga vopnahlé í síðustu viku og ekki er annað vitað en að það sé enn í gildi.
Go to News Site