Collector
Framboðslistar í Vesturbyggð og Árneshreppi samþykktir | Collector
Framboðslistar í Vesturbyggð og Árneshreppi samþykktir
Fréttastofa RÚV

Framboðslistar í Vesturbyggð og Árneshreppi samþykktir

Kjörstjórnir Árneshrepps og Vesturbyggðar hafa hvor um sig samþykkt tvo framboðslista sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Framboðsfrestur var framlengdur um tvo sólarhringa í bæði Árneshreppi og í Vesturbyggð á föstudag þar sem einungis eitt framboð hafði borist í sitt hvoru sveitarfélaginu. Í tilkynningu frá kjörstjórn Árneshrepps segir að annars vegar hafi Á-listi Framtíðar Árneshrepps verið samþykktur og hins vegar S-listi Sólstaða. Þá staðfesti yfirkjörstjórn Vesturbyggðar tvo gilda framboðslista á fundi sínum í dag, N-lista Nýrrar sýnar og V-lista Sterkari Vesturbyggðar. Listi Framtíðar Árneshrepps (Árneshreppur) Sigrún Sverrisdóttir Þorgerður Lilja Björnsdóttir Róbert Hlífar Ingólfsson Thomas Elguezabal Davíð Már Bjarnason Pétur Freyr Ragnarsson Joanna Zofia Wilczynska Kristín Guðmundsdóttir Björn Guðmundur Torfason Guðjón Stefán Kristinsson Listi Sólstaða (Árneshreppur) Listi Sólstaða er væntanlegur og verður birtur þegar hann berst fréttastofu. Listi Nýrrar sýnar (Vesturbyggð) Þórkatla Soffía Ólafsdóttir Rebekka Hilmarsdóttir Jenný Lára Magnadóttir Gunnþórunn Bender Jón Árnason Friðbjörn Steinar Ottósson Jónas Snæbjörnsson Einar Helgason Edda Bára Árnadóttir Halldór Jökull Ólafsson Aðalsteinn Magnússon Andrés Páll Ásgeirsson Steinunn Sigmundsdóttir Jóhann Pétur Ágústsson Listi Sterkari Vesturbyggðar (Vesturbyggð) Hlynur Ársælsson Friðbjörg Matthíasdóttir Egill Níelsson Silja Baldvinsdóttir Rúnar Ingi Pétursson Jóhann Örn Hreiðarsson Þorbjörn Guðmundsson Svanhildur Björk Gísladóttir Gísli Ægir Ágústsson Lech Robert Raszkiewicz Guðlaug Sigurrós Björnsdóttir Ísak Óli Óskarsson

Go to News Site