Collector
Segir engan vafa á um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist | Collector
Segir engan vafa á um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist
Fréttastofa RÚV

Segir engan vafa á um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir alveg skýrt um hvað verði kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Einhverjir þingmenn afneiti þeirri staðreynd að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hafi aldrei verið afturkölluð. Þetta kom fram í svari Þorgerðar Katrínar við spurningu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Þá hafði Guðrún spurt Þorgerði hvort henni þætti ásættanlegt að leggja fyrir þjóðina spurningu sem landskjörstjórn teldi að gæti vakið tortryggni um áhrif á afstöðu kjósenda. Auk þess spurði Guðrún hvort til greina kæmi að endurskoða tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem hún sagði geta haft erfiðleika í för með sér fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Vill bjóða upp á fleiri valkosti í „hverfulum heimi“ „Það er hin einfalda skýra staðreynd. Umsóknin um aðild að Evrópusambandinu var samþykkt með þingsályktun í þinginu á sínum tíma og ég tel það mjög mikilvægt að við berum virðingu fyrir þinginu í þessu máli,“ sagði Þorgerður Katrín í svari sínu við fyrirspurn Guðrúnar á Alþingi í dag. Hún sagði málið nú vera í lögbundnum farvegi í samráði við landskjörstjórn. Þingið hefði aldrei afturkallað umsóknina. Það hefði verið reynt tvisvar sinnum en í hvorugt skiptið náðist þingmeirihluti. „Það sem mér finnst skipta máli er virðing fyrir þinginu og virðing fyrir því sem þingið hefur ákveðið. Ekki að framkvæmdarvaldið geti eftir hentugleika eða hugleysi fyrir því að hafa ekki komið með málið inn í þingið geti síðan gripið til afgerandi samskipta sem ekki einu sinni fóru fyrir utanríkismálanefnd á sínum tíma,“ sagði Þorgerður Katrín. „Ég er algerlega þeirrar skoðunar að við erum að greiða atkvæði núna 29. ágúst um það að klára samningaviðræður við Evrópusambandið og bjóða upp á fleiri valkosti í þessum hverfula heimi sem við Íslendingar og heimsbyggðin öll lifum í.“

Go to News Site