Collector
Laufey „brjáluð“ í Heated Rivalry-stjörnu í nýju tónlistarmyndbandi | Collector
Laufey „brjáluð“ í Heated Rivalry-stjörnu í nýju tónlistarmyndbandi
Fréttastofa RÚV

Laufey „brjáluð“ í Heated Rivalry-stjörnu í nýju tónlistarmyndbandi

Tónlistarmyndband Laufeyjar við lagið Madwoman kom út í dag. Myndbandið skartar meðal annars stórstjörnunum Alysu Liu og Hudson Williams. Lagið er hluti af viðhafnarútgáfu Laufeyjar, A Matter of Time: The Final Hour , sem kom út fyrir helgi. Platan kom út í fyrra og hlaut Grammy-verðlaun í febrúar. Í tónlistarmyndbandinu sem birt var á streymisveitunni Youtube í dag bregður mörgum af skærustu stjörnum síðustu mánaða fyrir. Þar fer bandaríski leikarinn Hudson Williams með hlutverk mannsins sem Laufey hefur augastað á. Williams, sem er 25 ára gamall, fer með annað aðalhlutverkanna í sjónvarpsþáttunum Heated Rivalry sem notið hafa gífurlegrar velgengni. Þá leika þær Alysa Liu, Megan Skiendiel og Lola Tung hlutverk vinkvenna Laufeyjar í myndbandinu. Alysa Liu er bandarísk skautakona sem varð Ólympíumeistari á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó fyrr á þessu ári. Liu vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína og dansaði til að mynda við tónlist Laufeyjar. Megan Skiendiel er bandarísk söngkona og meðlimur stúlknahljómsveitarinnar KATSEYE sem skotist hefur hratt upp á stjörnuhimininn á undanförnum misserum. Þriðja vinkona Laufeyjar í tónlistarmyndbandinu er bandaríska leik- og söngkonan Lola Tung en hún er einna þekktust fyrir leik sinn í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni The Summer I Turned Pretty .

Go to News Site