Collector
Loka skíðasvæðinu þrátt fyrir nægan snjó | Collector
Loka skíðasvæðinu þrátt fyrir nægan snjó
Fréttastofa RÚV

Loka skíðasvæðinu þrátt fyrir nægan snjó

Einhverjir voru undrandi á að Skíðafélag Dalvíkur tilkynnti um vertíðarlok, því nægur snjór er í Böggvisstaðarfjalli og aðstæður til skíðaiðkunar góðar. Lyfturnar eru þó opnar fyrir skíðaæfingar en hin almenni Dalvíkingur þarf að bíða til næsta veturs til að komast í brekkurnar. Erfið tíð í fyrravetur dró verulega úr tekjum, svo mikið að félagið fékk 10 milljónir fyrirframgreiddar af rekstrarstyrk ársins frá Dalvíkurbyggð. Það sé meginástæða þess að þeir loki núna: Peningurinn sé búinn.

Go to News Site