Fréttastofa RÚV
Þotan var á leið frá Frankfurt til Keflavíkur en flugstjórinn, sem er frá Vestmannaeyjum, var að kveðja eftir 40 ár í starfi. Hann óskaði eftir breytingu á flugleið við Avians, sem sinnir flugleiðsögn á íslenska flugstjórnarsvæðinu, og sú beiðni var samþykkt. Icelandair sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem segir að lágflugið hafi hvorki verið á vitorði né með heimild stjórnenda félagsins. Það sé litið mjög alvarlegum augum. Atvikið var tilkynnt til lögreglu um helgina og Samgöngustofa hefur tekið það til rannsóknar. Samkvæmt reglum um lágmarksflughæð má ekki fljúga sjónflug í minni hæð en þúsund fetum yfir þéttbýli, tæpum 305 metrum, nema við flugtak og lendingu. Til samanburðar er Heimaklettur, hæsta fjall Vestmannaeyja, 283 metrar. Næsthæsti tindur eyjanna er Blátindur, 273 metrar á hæð. Í svörum frá Samgöngustofu segir að flugrekandi, í þessu tilfelli Icelandair, beri ábyrgð á öruggri starfrækslu loftfars - og tilnefni flugstjóra sem fer með æðsta vald í loftfari. Gætu afturkallað réttindi, lagt á sektir og kært til lögreglu Við brot á þessum reglum er Samgöngustofu heimilt af fella tímabundið úr gildi eða afturkalla réttindi flugmanns vegna brota, en réttindi eru ekki bundin við atvinnusamband. Þá er hægt að leggja stjórnvaldssektir á eftirlitsskylda aðila sem brjóta gegn tilteknum ákvæðum laganna, og heimilt að kæra brot á lögum til lögreglu. Sektir við brotum á lögunum á breiðu bili Upphæð stjórnvaldssekta er á nokkuð breiðu bili eftir alvarleika. Sektir á einstaklinga geta numið frá 25 þúsund krónum til átta milljóna króna. Sektir á lögaðila geta numið allt frá 75 þúsund krónum til 100 milljóna króna. Icelandair ætlar ekki tjá sig nánar um atvikið meðan á rannsókn stendur. Flugstjórinn er hættur störfum en engin svör fengust um hvort flugmaðurinn, sem flaug með flugstjóranum, hefði verið sendur í leyfi meðan atvikið er rannsakað.
Go to News Site