Collector
Dimma segir fullyrðingar Stebba Jak ósannar og kasta rýrð á samstarfið | Collector
Dimma segir fullyrðingar Stebba Jak ósannar og kasta rýrð á samstarfið
Fréttastofa RÚV

Dimma segir fullyrðingar Stebba Jak ósannar og kasta rýrð á samstarfið

„Ekki er allt sem sýnist í Dimmu,“ segir Ingólfur H. Geirdal, hljómsveitarmeðlimur í Dimmu, fyrir hönd sveitarinnar í færslu á Facebook-reikningi sínum. Þar bregst hann við ásökunum Stefáns Jakobssonar, fyrrverandi aðalsöngvara hljómsveitarinnar, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli. Stefán, betur þekktur sem Stebbi Jak, sagði skilið við hljómsveitina eftir 15 ára starf í síðustu viku, en hann hafði verið sýknaður af líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness í sömu viku. Í færslu þar sem hann tilkynnti brotthvarf sitt úr sveitinni sagði hann Silla og eiginkonu hans tengjast þeim sem ákærði hann náið og hafa tekið skýra afstöðu með honum frá upphafi. Andrúmsloftið ekki auðvelt Ingólfur skrifar fyrir hönd hljómsveitarinnar í færslunni en þeir Silli eru bræður. Hann segir fullyrðingar Stefáns ekki aðeins „ærumeiðandi óhróður heldur ósannindi“. Silli og eiginkona hans hafi ekki tekið skýra afstöðu á móti Stefáni frá upphafi, heldur hafi þau þvert á móti reynt að koma á sáttum milli hans og mannsins sem sakaði hann um ofbeldi. Því hafi Stefán hafnað. Þar sem þau hjónin hafi tengst þeim báðum, annars vegar fjölskylduböndum og hins vegar vinaböndum, og mönnunum ekki borið saman um málsatvik hafi þau beðið um að vera ekki dregin frekar inn í deilurnar. Stefán og eiginkona hans hafi brugðist við því með því að blokka þau á samfélagsmiðlum og biðja um að eiginkona Silla kæmi ekki baksviðs á tónleika. Það hafi ekki gert andrúmsloftið auðvelt og á endanum hafi samstarfið sprungið. Ingólfur segir Silla aftur á móti lengi hafa haldið áfram að sinna störfum sínum fyrir sveitina eins, sem hann hefði varla gert hefði hann tekið skýra afstöðu gegn Stefáni frá upphafi. „Þvert á móti hélt Silli áfram að bóka tónleika, hljóðblanda og klippa myndefni og hanna auglýsingar ásamt eiginkonu sinni, þar sem Stefán var oftar en ekki hafður í forgrunni eins og áður.“ Geri fyrrum samstarfsmenn sína að blórabögglum Hann segir þá bræður hafa talið að hljómsveitin ætti allavega 10 góð ár eftir saman og að þeir óski Stefáni velfarnaðar. Þeim þyki þó ljótt að Stefán slíti samstarfinu með þessum hætti og gera fyrrum samstarfsmenn sína að „blórabögglum í fjölmiðlum“. Þar með kasti hann rýrð á þau 23 ár sem Dimma hefur verið starfandi og þau 15 ár sem Stefán hafi sjálfur starfað með hljómsveitinni. „Ásetningurinn er augljós; að búa þannig um hnútana að við fyrrum samstarfsfélagar hans eigum okkur varla viðreisnar von.“

Go to News Site