Collector
Valur flaug í úrslit annað árið í röð | Collector
Valur flaug í úrslit annað árið í röð
Fréttastofa RÚV

Valur flaug í úrslit annað árið í röð

Valur sigraði KA, 38-34 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta að Hlíðarenda í kvöld. Þar sem Valur hafði unnið fyrstu tvo leiki liðanna er einvíginu þar með lokið 3-0 og Valsmenn komnir í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta er annað árið í röð sem Valur leikur til úrslita því í fyrra komst Valur líka í úrslitaeinvígið en tapaði þá fyrir Fram 3-0. Nú verður mótherjinn annað hvort FH eða Haukar, en Hafnarfjarðarliðin etja kappi í hinu undanúrslitaeinvígi Íslandsmótsins. Þar er staðan 1-1 en liðin mætast í þriðja leik annað kvöld og í fjórða leik á föstudag. Komi til oddaleiks verður hann spilaður næsta mánudag. Úrslitaeinvígi Vals og Hafnarfjarðarliðsins sem vinnur þá rimmu, hefst að óbreyttu í lok næstu viku, föstudaginn 24. apríl. Andri Finnsson var markahæstur Valsmanna í sigrinum á KA í kvöld með átta mörk. Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði sjö og Arnór Snær Óskarsson sex. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 10 mörk fyrir KA.

Go to News Site