Fréttastofa RÚV
Leeds gerði vel þegar liðið vann 2-1 útisigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Noah Okafor kom Leeds yfir með marki strax á fimmtu mínútu leiksins og jók svo forskotið í 2-0 þegar hann skoraði á 29. mínútu. Ekki lagaðist staðan fyrir United þegar Lisandro Martinez fékk rautt spjald snemma í seinni hálfleik, en Casemiro skoraði þó á 69. mínútu eftir undirbúning Bruno Fernandes og lagaði stöðuna í 2-1. Það urðu úrslitin og mikilvægur sigur Leeds var þar með í höfn. Leeds er eftir sem áður þó í 15. sæti en hefur nú 36 stig, sex stigum meira en Tottenham sem er í 18. sæti með 30 stig. Þrjú neðstu lið deildarinnar sem telur 20 lið, fellur í næstefstu deild. Átta umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. Manchester United er áfram í 3. sæti með 55 stig en Aston Villa hefur jafn mörg stig í 4. sæti og Liverpool hefur svo 52 stig í 5. sæti
Go to News Site