Fréttastofa RÚV
Jón Steinar Konráðsson, sem rak fósturheimili á Gauksstöðum í Garði, hefur brugðist við umfjöllun um starfsemi heimilisins. Hann segir umræðuna drifna af andstæðingum uppbyggingar hans á svæðinu og segist ekki lengur geta unað því að „vitleysan verði staðreynd í huga fólks“. Í færslu sem hann birtir í íbúahópnum Garðmenn og Garðurinn frábiður Jón Steinar sér allan samanburð á sínu máli og þeim málum sem hafa verið í fréttum af vistheimilum barna frá miðri 20. öld og segir lífi sínu og konu hans snúið á hvolf og mannorð þeirra skemmt. Jón Steinar rak heimilið ásamt eiginkonu sinni Lindu Angelique Elizondo og þar bjuggu um 30 börn á um 10 ára tímabili. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði þau fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 eftir að Barnaverndarstofa hafði sent kæru til lögreglunnar og var fósturheimilinu lokað í kjölfarið. Skýrslur voru teknar af fjölda fólks sem hafði verið þar sem börn en rannsóknin var felld niður árið 2021 á grundvelli skorts á sönnunargögnum og þar sem einhver mál voru fyrnd. Leitað til þeirra með erfiðari tilfelli Málið var til umfjöllunar í Þetta helst þar sem rætt var við tvo einstaklinga sem voru í fóstri á Gauksstöðum og lýstu vist sinni þar. Ungur maður lýsti vistuninni sem helvíti og sagðist hafa verið læstur inni í hænsnakofa. Önnur kona lýsti því að hurð að svefnherbergi hennar hefði verið tekin af hjörunum og eftirlitsmyndavél sett upp til að fylgjast með henni. Jón Steinar segir að ekkert barn hafi orðið fyrir ofbeldi á heimilinu. Þau hjónin hafi þótt standa sig vel að mati barnaverndar og Barnastofu sem varð til þess að með árunum hafi verið leitað til þeirra með fleiri og gjarnan erfiðari tilfelli. Það „Svo það sé alveg skýrt þá snérust ásakanir á hendur okkur um að börn hefðu ekki mátt eða hefðu þurft að gera hitt og þetta, sem á íslensku kallast agi,“ skrifar Jón Steinar. „Ég geri mér fulla grein fyrir því að maður þurfti oft að vera hundleiðinlegur þegar kom að því að taka á málum sem komu upp en það var alltaf gert með því markmiði að standa með börnunum, styrkja þau og fá þau til þess að taka ábyrgð á eigin gjörðum og lífi. Alveg eins og ábyrgt foreldri gerir með sín eigin börn.“ Telur andstæðinga uppbyggingaráforma búa að baki umræðunni Hann kveðst hafa fengið símtal frá fyrrum fósturbarni í ársbyrjun 2019 sem hafi tilkynnt þeim að verið væri að smala saman fólki sem hjá þeim dvaldi í málsókn. Nokkur þáverandi og fyrrverandi fósturbörn hefðu talað sig saman um að sækja skaðabætur frá kerfinu með því að höfða mál gegn hjónunum. Seinna sama ár hafi þeim aftur á móti verið tilkynnt að börnin sem hjá þeim dvöldu kæmu ekki til baka vegna rannsóknar á ásökunum á hendur þeim. Eftir nokkurra ára bið hafi loks komið niðurstaða í málið og það fellt niður. Hann telur ástæðuna fyrir því að málið sé komið aftur í umræðuna vera uppbyggingu hans á ferðaþjónustu á Gauksstöðum. Andstæðingar hennar hafi reynt allt til þess að koma í veg fyrir áformin. Hann segir flest börn sem hjá þeim hafi dvalið hafa verið í sambandi við þau hjónin að eigin frumkvæði eftir að fóstri lauk og segist eiga margar góðar minningar af þeim tíma sem þau ráku fósturheimilið. „Ég ber engan kala til barnanna sem tóku þátt í þessu máli gegn okkur, það er eðlilegt að börn geri mistök, leiti að blóraböggli fyrir þeirri stöðu sem þau eru í og láti peninga blinda sig í að fara gegn eigin sannfæringu.“
Go to News Site