Collector
Eitrað fyrir gæludýrum í Kjós | Collector
Eitrað fyrir gæludýrum í Kjós
Fréttastofa RÚV

Eitrað fyrir gæludýrum í Kjós

Dýralæknastofan Animalía og samtökin Villikettir vara gæludýraeigendur í Kjós við því að halda dýrum sínum sem mest inni vegna tveggja atvika þar sem eitrað var fyrir gæludýr í sumarbústaðahverfi nærri Hvammi og Hvammsvík í Kjós. Samtökin Villikettir greina frá því í færslu á Facebook í kvöld að köttur hafi fundist í alvarlegu ástandi í Kjós í dag sem ekki var hægt að bjarga. Talið er líklegt að kötturinn hafi orðið fyrir sams konar eitrun og hundur sem dó um helgina. Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir dýrunum með frostlegi en pylsubitar fundust skammt frá þeim stað þar sem kötturinn fannst. Samkvæmt færslu Animalíu á Facebook þá er frostlögseitrun mjög alvarleg og veldur hratt óafturkræfri nýrnabilun. Ef grunur leikur á að dýr hafi orðið fyrir eitrun þarf það að komast undir læknishendur strax. Samtökin Villikettir biðja fólk í sumarbústaðahverfinu í Kjós að halda gæludýrum sínum sem mest inni við, vera vakandi fyrir matvælum á víðavangi og kanna hvort mögulegar beitur séu á svæðinu. Atvikin eru sögð alvarleg og verða tilkynnt til MAST.

Go to News Site