Collector
Palads-bíóið fær fimm nýjar hæðir | Collector
Palads-bíóið fær fimm nýjar hæðir
Fréttastofa RÚV

Palads-bíóið fær fimm nýjar hæðir

Hið margrómaða kvikmyndahús Palads í miðborg Kaupmannahafnar verður endurnýjað og fleiri hæðum bætt við gangi eftir nýsamþykkt deiliskipulag meirihlutans í loftslags-, tækni- og umhverfisnefnd Kaupmannahafnarborgar sem samþykkt var í gær. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá því að lengi hafi verið til umræðu að breyta húsinu. Ekki voru allir á eitt sáttir um hvernig best væri að haga þeim breytingum og Kaupmannahafnarborg bárust alls um 3.000 athugasemdir frá íbúum og hagsmunasamtökum. Með samþykki meirihlutans er deiliskipulagið svo gott sem frágengið en deiliskipulagið verður tekið fyrir í borgarstjórn þar sem búist er við að það verði endanlega samþykkt. Palads kvikmyndahúsið er stærsta kvikmyndahús Danmerkur með 17 sýningarsali og stendur við Vesterport lestarstöðina. Húsið er málað í glaðlegum litum og sker sig óneitanlega úr frá nærliggjandi húsum í miðborginni. Gert er ráð fyrir að hönnun hússins og skreytingar Pouls Gernes verði varðveittar eins mikið og kostur er líkt og kemur fram í deiliskipulaginu. Fimm hæðum verður bætt ofan á húsið sem mun hýsa hótel og veitingastað en kvikmyndasýningar verða áfram á fyrstu hæðum hússins.

Go to News Site