Collector
Rubio fundar með sendiherrum Ísraels og Líbanon í Washington | Collector
Rubio fundar með sendiherrum Ísraels og Líbanon í Washington
Fréttastofa RÚV

Rubio fundar með sendiherrum Ísraels og Líbanon í Washington

Viðræður milli sendiherra Ísraels og Líbanon í Bandaríkjunum hefjast í Washington í Bandaríkjunum í dag. Sendiherrarnir ræða hvort hægt verði að hefja beinar friðarviðræður milli þjóðanna sem tæknilega séð hafa verið í stríði hvor við aðra í áratugi. Breska ríkisútvarpið BBC segir að Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna taki þátt í fundinum milli sendiherranna. Líbönsk stjórnvöld vilja fyrst tryggja vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah-samtakanna en stjórnvöld í Ísrael hafa ekki tekið undir það fram til þessa. Ísraelar vilja að Hezbolla-samtökin verði afvopnuð og stjórnvöld vilja leggja áherslu á beinar friðarviðræður við Líbanon. Leiðtogi Hezbollah, Naim Qassem, hefur hafnað friðarviðræðum. Hann fer fram á að fundinum verði aflýst og heitir því að berjast fram að síðasta andardrætti. Margra áratuga átakasaga Ísraelar og Líbanar eiga sér langa átakasögu. Árið 1982 réðust Ísraelar inn í Líbanon. Ísraelar og Líbanar komust að lokum að samkomulagi um að enda stríðið sín á milli en það samkomulag rann út í sandinn. Í desember síðastliðnum voru fyrstu beinu viðræður milli landanna í áratugi. Þær viðræður voru leið til að fylgja eftir vopnahléi frá árinu 2024, sem miðaði að því að binda enda á fyrri átök milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna. Samskipti Ísraels og Líbanon litast þó líka af áhrifum frá Bandaríkjunum og Íran, Bandaríkin styðja Ísraela og Íranir Líbana. Ísraelar viðurkenna ekki vopnahléið Heilbrigðisyfirvöld í Líbanon segja að 2.089 hafi verið drepnir í árásum Ísraela síðan stríðið í Mið-Austurlöndum breiddist út til Líbanon 2. mars. Þá hafa yfir 6.500 særst í átökunum og hundruð þúsunda Líbana eru á vergangi. Tveggja vikna vopnahléi sem Bandaríkin og Íran sömdu um var ætlað að ná yfir Líbanon líka. Það hefur þó ekki gengið eftir því Ísraelar hafa ekki viðurkennt að vopnahléið nái líka yfir Líbanon.

Go to News Site