Collector
Unglingur keyrði rútu frá Noregi til Svíþjóðar | Collector
Unglingur keyrði rútu frá Noregi til Svíþjóðar
Fréttastofa RÚV

Unglingur keyrði rútu frá Noregi til Svíþjóðar

Sænskur lögreglubíll í Stokkhólmi. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / Henrik Montgomery Sænska lögreglan stöðvaði rútu skráða í Noregi í nótt í bænum Stenungsund norður af Gautaborg í Svíþjóð. Lögreglunni hefur væntanlega brugðið þegar hún sá betur bílstjórann, en undir stýri sat 14 ára norskur unglingur sem hafði keyrt rútuna frá Noregi og yfir landamærin til Svíþjóðar. Ekki hefur verið uppgefið hvar ferð hans hófst en frá Stenungsund að norsku landamærunum eru um 138 kílómetrar. Sænska ríkisútvarpið SVT segir að unglingurinn hafi verið settur í varðhald en honum verði komið til foreldra sinna í samvinnu við norsk yfirvöld. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa keyrt rútuna enda nokkur ár í að hann fái bílpróf.

Go to News Site