Vísir
Fjórir kvenkyns matreiðslumeistarar hafa stofnað nýtt félag, Kokkakonur, fyrir konur í matreiðslubransanum. Þær segja konur í þessum karllæga heimi deila reynslu og það sé gott að hafa sameiginlegan vettvang til að geta talað opinskátt um þeirra reynslu og upplifun. Þær sjá fyrir sér að halda fundi en ætla einnig að „kjafta, skála og knúsa og eiga skemmtilegar stundir“.
Go to News Site