Fréttastofa RÚV
Varnarmálaráðherra Indónesíu, Sjafrie Sjamsoeddin, og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.AP/FR33460 AP / Kevin Wolf Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna til kynnti um stóran varnarsamnig við Indónesíu eftir fund hans með varnarmálaráðherra Índónesíu Sjafrie Sjamsoeddin í gær. Varnarsamstarfið felur í sér hernaðaruppbyggingu, þjálfun, æfingar og samstarf í aðgerðum samkvæmt sameiginlegri tilkynningu varnarmálaráðherranna. Stjórnvöld Indónesíu segja samninginn tækifæri til að byggja upp indónesíska herinn og styrkja varnir landsins. Indónesar eru sagðir búa yfir mesta herstyrk þjóða í Suðaustur-Asíu samkvæmt bandarísku greiningarvefsíðunni Global Firepower Defense.
Go to News Site