Fréttastofa RÚV
Dýrahjálp reynir að útvega heimilislausum gæludýrum fósturfjölskyldur ef aðstæður dýranna breytast, þar til varanlegt heimili finnst. Ástæður fyrir vergangi gæludýra geta verið ýmsar og oft breytast heimilishagir eigenda. Sonja Stefánsdóttir er framkvæmdastjóri Dýrahjálpar og bendir á nauðsyn þess að velja sér dýr sem henti heimilisaðstæðum og lífsstíl eigendanna. Sumar hundategundir þurfa meiri hreyfingu en eigendur geta sinnt í þéttbýli. Þá er óréttlátt að bæla niður grunnþarfir hundsins. Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir segir að vistaskipti hafi mikil áhrif á dýrin. „Þau þurfa að upplifa sig örugg, alveg eins og við. Breytingar geta raskað þessu, en stundum koma þau úr óöryggi í öryggið. Ef þau finna kærleika og öryggi hjá eigendum, eru þau yfirleitt fljótari að jafna sig“.
Go to News Site