Collector
Skrifað í sand: „Ég veit ekki alveg hvernig hann hefði getað unnið úr þessu, í alvöru talað“ | Collector
Skrifað í sand: „Ég veit ekki alveg hvernig hann hefði getað unnið úr þessu, í alvöru talað“
Fréttastofa RÚV

Skrifað í sand: „Ég veit ekki alveg hvernig hann hefði getað unnið úr þessu, í alvöru talað“

Karl Sigurbjörnsson biskup skildi eftir sig handrit að sjálfsævisögu þegar hann lést í febrúar 2024. Þar lýsir hann uppvexti sínum og daglegu lífi í Reykjavík um miðja síðustu öld, segir frá litríkum persónum, skólagöngu, áhrifavöldum og prestsárum en fjallar einnig um erfið mál á biskupsstóli. „Eins og í mörgum svona bókum þá er æskukaflinn einstaklega sjarmerandi,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV um bókina Skrifað í sand: minningabrot. „Þetta er mjög vel skrifuð bók með góðum persónulýsingum. Hann lýsir foreldrum sínum og systkinum og svo koma fyrir menn eins og Kjarval. Þetta er allt mjög vel gert.“ „Svo skín í gegn ást hans á fjölskyldu sinni og börnum og konu sinni. Það er greinilegt þegar maður les bókina hvað hún hefur verið honum gríðarlegur styrkur, eins og hann viðurkennir og segir svo oft frá og talar einstaklega fallega um.“ Karl var kjörinn biskup Íslands árið 1997 og gegndi því embætti í 14 ár. Eftir það þjónaði hann um tíma í Dómkirkjuprestakalli. „Svo kemur erfiði kaflinn í bókinni sem eru biskupsárin. Maður les út úr því að hann var mjög tregur til að taka að sér biskupsembættið. Hann lenti í mjög vondum málum þar og var eiginlega, vil ég segja, í ómögulegri stöðu. Ég veit ekki alveg hvernig hann hefði getað unnið úr þessu, í alvöru talað.“ Í lok bókarinnar er Karl orðinn veikur. „Í gegnum allt þetta fléttast þessi mikla og heita og fallega trú hans,“ segir Kolbrún. „Ég er sanntrúuð og það snerti mig mjög hvað trúin skipti hann gríðarlega miklu máli.“ Undir þetta tekur Þorgeir Tryggvason kollegi hennar. „Ég verð nú að segja það að heiðinginn ég hreifst eiginlega heitast af lýsingum og greiningu Karls á sinni upplifun af því að vera trúuð manneskja. Af ást hans á ritúali sem honum verður tíðrætt um, sálmum og mikilvægi sálma í trúarlífi sínu og þjóðarinnar í gegnum aldirnar og árin.“ Þykir skýringar á málalyktum ekki trúverðugar Þorgeir segir samt að kaflinn þar sem Karl fer í gegnum þau erfiðu mál sem hann tókst á við sem biskup og ár hans í embættinu hefði orðið öðruvísi hefði honum auðnast að vinna þessa bók með ritstjóra. „Hann er svo óskaplega sannfærður um að hann hafi alltaf rétt fyrir sér og er óskaplega tilbúinn að gefa sér illan hug og innræti allra sem eru uppi á móti honum. Það er ekki sérlega ánægjulegt að lesa.“ Þessu er Kolbrún ósammála. „Mér finnst hann ekki gera fólki upp illt innræti. Ég held að hann hefði getað verið miklu harðari, mér finnst hann tiltölulega mildur,“ segir hún. „Hann var maður sátta og samninga. Það var mjög erfitt að vinna úr þessum málum. Maður skynjar hvað þetta tók gríðarlega á hann.“ Eins þykir henni Karl hafa mátt nefna nöfn í þessu samhengi. Þorgeir segist þó ekki alveg hafa trúað greiningu Karls á aðstæðum og málalyktum. „Og líka varðandi samfélagsbreytingarnar sem jaðarsetja svolítið kirkjuna. Hann sér aldrei neitt annað en að það sé einhverjum að kenna og þetta sé allt saman miður og hefði getað breyst ef fólk hefði bara verið aðeins duglegra að læra sálma. Ég trúði því ekki alveg.“ „Ég veit að þetta er svolítið hart og mögulega ómaklegt því það er margt mjög fallegt í þessari bók.“ Elskulegur og velviljaður maður Ljóst má vera við lestur bókarinnar að Karl hafi séð eftir að hafa tekið við biskupsembætti, sér í lagi á tímum þar sem samfélagið var að taka miklum breytingum og gagnrýni á kirkjuna var mikil. „Hann var einstaklega elskulegur og velviljaður maður. Ég kynntist honum örlítið og öll samskipti voru dásamleg,“ segir Kolbrún og þau Egill Helgason eru sammála um að hann hafi verið vinsæll prestur og geðugur maður. „Það sem er fallegt í þessari bók er lýsing á lífi í trúnni, lífi í kirkjunni og ég er alveg sannfærður um að Karl hafi verið afbragðsgóður prestur,“ segir Þorgeir. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um sjálfsævisögu Karls Sigurbjörnssonar biskups sem nefnist Skrifað í sand. Þau sjá margt fallegt í frásögn hans en eru ósammála um inntak kaflans um erfið ár á biskupsstóli. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Skrifað í sand eftir Karl Sigurbjörnsson. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site