Collector
Olíutekjur Rússa tvöfölduðust í mars | Collector
Olíutekjur Rússa tvöfölduðust í mars
Fréttastofa RÚV

Olíutekjur Rússa tvöfölduðust í mars

Olíuútflutningur Rússa stórjókst í síðasta mánuði eftir að Bandaríkin drógu úr viðskiptahömlunum gegn landinu. Stjórnvöld í Washington ákváðu að leyfa ríkjum að kaupa rússneska olíu til 11. apríl, með þeim fyrirvara að heimildin ætti við um olíu sem væri þegar um borð í skipum á sjó úti. Þetta gerðu Bandaríkjamenn til að mæta olíuverðshækkunum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Tekjur Rússa af olíuútflutningi nærri tvöfölduðust milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaorkumálastofnuninni. Tekjurnar námu 19 milljörðum dollara í mars. Rússneska olíuflutningaskipið Anatoli Kolodkin þegar það kom til hafnar á Kúbu.EPA / Stringer

Go to News Site