Fréttastofa RÚV
Í það minnsta sjö eru sárir eftir skotárás í skóla í suðaustanverðu Tyrklandi í morgun. Árásarmaðurinn er nemandi við skólann sem notaði veiðiriffil við árásina, sagði fréttastofa NTV. Sérsveit lögreglu var send að skólanum. Hún náði að forða nemendum og starfsfólki úr skólanum. Lögregla hefur verið í sambandi við árásarmanninn og reynir að fá hann til að gefast upp. Tyrkneskir lögreglumenn. Safnmynd.AP / Khalil Hamra
Go to News Site