Fréttastofa RÚV
Tækni- og hugverkaiðnaður skilaði rúmlega 440 milljörðum króna í verðmætasköpun á síðasta ári, samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins. Sú tala er fengin út með því að reikna launakostnað og hagnað í greininni. Greinin velti í allt nær 700 milljörðum króna. Útflutningstekjur námu 369 milljörðum og voru 19 prósent af heildarútflutningstekjum Íslands. Þær hafa áttfaldast frá 2008, samkvæmt greiningu samtakanna. Þau segja að tækni- og hugverkaiðnaður hafi slegið sjávarútvegi við þegar kemur að útflutningi. Undir tækni- og hugverkaiðnað falla auk annarra fyrirtæki í upplýsingatækni, gagnaver, tölvuleikjagerð, lyfjaframleiðsla og hátækniiðnaður. Marel er eitt þeirra fyrirtækja sem teljast til tækni- og hugverkaiðnaðar.RUV / Anton Brink
Go to News Site