Collector
Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt | Collector
Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt
Fréttastofa RÚV

Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt

Oddvitaumræður RÚV fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefja göngu sína í kvöld klukkan 20:50 þegar oddvitar framboðanna sex í Hafnarfirði mætast í sjónvarpi. Umræðunum er jafnframt útvarpað samtímis á Rás 2, auk þess sem þær eru sýndar á ruv.is. Næstu vikur fram að kosningum mætast svo oddvitar tuttugu stærstu sveitarfélaganna, auk Grindavíkur*, í þáttum sem eru á dagskrá tvisvar til þrisvar í viku, bæði í útvarpi og sjónvarpi, ýmist á aðalrás RÚV eða RÚV 2. Þetta eru fleiri þættir af þessum toga en RÚV hefur boðið upp á í sveitarstjórnarkosningum til þessa. Í þessu 21 sveitarfélagi búa yfir 90% landsmanna. Öðrum smærri sveitarfélögum verður sinnt með margvíslegum hætti, meðal annars í fréttaumfjöllun, með kosningaprófi sem hleypt verður af stokkunum þegar nær dregur kosningum og með heimsóknum frá samfélagsmiðlafréttamönnum sem ætla að kynna sér það sem helst brennur á heimamönnum. Lokaþáttur oddvitaumræðnanna verður þáttur með oddvitum í Reykjavík, í beinni útsendingu úr sjónvarpssal föstudagskvöldið fyrir kjördag. Þættir með oddvitum annarra sveitarfélaga þar sem búa yfir 20 þúsund manns verða sýndir að kvöldlagi á aðalrás RÚV. Hinum þáttunum verður útvarpað á Rás 1 og 2 á milli 18:05 og 19:00 og sýndir á RÚV 2. *Grindavík var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þar til bærinn var rýmdur í nóvember 2023 og brottfluttum íbúum gafst kostur á að skrá sig þar á kjörskrá. Óvenjuleg staða bæjarfélagsins gefur auk þess sérstakt tilefni til oddvitaumræðna þar.

Go to News Site