Collector
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða | Collector
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða
Fréttastofa RÚV

Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða

Angel-kvikmyndaverið hefur birt stiklu úr Brink of War , nýrri kvikmynd um leiðtogafund Bandaríkjaforseta og leiðtoga Sovétríkjanna í Höfða 1986. Michael Russell Gunn leikstýrir myndinni og með hlutverk Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta fer Jeff Daniels. Jared Harris bregður sér í gervi Mikhaíls Gorbachev og Óskarsverðlaunahafinn J. K. Simmons leikur utanríkisráðherra Bandaríkjanna, George Shultz. Kvikmyndin er væntanleg í kvikmyndahús 14. ágúst. Hollywood-kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbachevs í Höfða er væntanleg í ágúst.

Go to News Site