Fréttastofa RÚV
Svarendur í nýrri könnun Maskínu telja að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi staðið sig best allra ráðherra á yfirstandandi kjörtímabili. Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er bæði talin hafa staðið sig verst og næstbest. Könnunin var lögð fyrir Þjóðargátt Maskínu dagana 25.-31. mars og voru svarendur 969 talsins. Í henni voru þátttakendur annars vegar spurðir hvaða ráðherra þeim þætti hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili og hins vegar hver þeim þætti hafa staðið sig verst. Forsætisráðherra skorar hæst Flestir sögðu Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hafa staðið sig best allra ráðherra, eða 21,1%. Næst á eftir nefndu 10,5% Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og 10,3% völdu Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Þar á eftir fengu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra rúmlega 6% atkvæða hvor um sig. Aðrir ráðherrar fengu undir 3% atkvæða. Tæplega þriðjungur þátttakenda sagði engan einn ráðherra hafa staðið sig best. Valkyrjurnar áberandi á báða bóga Þátttakendur voru einnig spurðir hvaða ráðherra þeim þætti hafa staðið sig verst á kjörtímabilinu. Þá völdu 24,6% Ingu Sæland en þar á eftir nefndu 19,8% Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. 8,7% sögðu Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra hafa staðið sig verst og 7,8% völdu Kristrúnu Frostadóttur. Um 6% sögðu Daða Má Kristófersson fjármála-og efnahagsráðherra hafa staðið sig verst og það sama á við um Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. Engin annarra ráðherra fékk meira en 3% atkvæða en 18% svarenda töldu engan einn hafa staðið sig verst.
Go to News Site