Collector
Hollywood-stjörnur mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Discovery | Collector
Hollywood-stjörnur mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Discovery
Fréttastofa RÚV

Hollywood-stjörnur mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Discovery

Rúmlega 1.400 leikarar, leikstjórar og kvikmyndagerðarfólk hafa skrifað undir opið bréf til að mótmæla fyrirhuguðum samruna kvikmyndaveranna Paramount og Warner Bros Discovery. Á meðal undirritaðra eru leikarar á borð við Emmu Thompson, Ben Stiller, Javier Bardem og Rose Byrne. Í bréfinu kemur fram að samruni þessi muni hafa slæm áhrif á þegar veikan kvikmyndabransa Bandaríkjanna. Samningurinn myndi draga úr samkeppni á þéttum markaði. Með þessum samruna yrðu aðeins fjögur stór kvikmyndaver eftir í Bandaríkjunum. Þar með myndi atvinnutækifærum fækka, kostnaður myndi aukast og kaupendur kvikmynda hefðu úr minna að velja, segir í bréfinu. Hvorki bandaríski kvikmyndabransinn né áhorfendahópurinn hafi ekki efni á slíkum takmörkunum. Paramount hefur brugðist við bréfinu með því að lofa skuldbindingu við starfskrafta og tryggja að samningurinn muni skapa fleiri leiðir fyrir verkefni kvikmyndagerðarfólks, ekki færri. Aðrar leikkonur sem skrifað hafa undir bréfið og lýst yfir ótvíræðri andstöðu sinni gegn samrunanum eru Kristen Stewart, Kristin Scott Thomas og Glenn Close. Bréfinu lýkur með biðlun til ríkissaksóknara Kaliforníu, Rob Bonta, og annarra eftirlitsaðila að koma í veg fyrir samninginn. Paramount Skydance hóf samningaviðræður um kaup á Warner Bros Discovery í lok febrúar þegar Netflix hætti við tilboð sitt í fyrirtækið sem á einnig vörumerki á borð við Looney Tunes, Harry Potter, Friends, Succession, Sex and the City, Game of Thrones og CNN. Það tilboð var einnig harðlega gagnrýnt af kvikmyndagerðarbransanum. David Ellison, forstjóri Paramount Skydance, hefur lýst yfir að Paramount og Warner Bros muni áfram starfa sem tvö aðskilin kvikmyndaver. Framleiðslan muni aukast og stefnt sé að því að gefa út í það minnsta 30 hágæða kvikmyndir á ári. Fleiri verkefnum verði hleypt í gegn og einnig verði unnið við að viðhalda þekktum vörumerkjum.

Go to News Site