Fréttastofa RÚV
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt EES-reglur um útsenda starfsmenn með réttum hætti. Það eru starfsmenn sem sendir eru tímabundið til ríkis af hálfu erlends þjónustufyrirtækis. Stofnunin hefur því sent stjórnvöldum formlegt áminningarbréf um tilskipunina og gefið út rökstutt álit vegna þessa. Þetta eru tvö fyrstu skrefin áður en mál er höfðað fyrir EFTA-dómstólnum ef stjórnvöld bregðast ekki við. Tilskipunin var upphaflega samþykkt 1996 og endurskoðuð 2018. ESA telur að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt ákvæði breytingarinnar frá 2018 sem snúa að réttindum starfsmanna. ESA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki tryggt það í lögum að skýrt sé hver beri ábyrgð á því að tryggja réttindi útsendra starfsmanna. Þau hafi heldur ekki tryggt rétt starfsmanna til endurgjalds vegna ferða-, gisti- og fæðiskostnaðar við upphaf ferðar og meðan þeir dvelja hér. Eins hefur ekki verið tryggt að starfsmenn geti lagt fram kvartanir gegn vinnuveitendum sínum eða hafið stjórnsýslumál auk þess sem stjórnvaldssektir og viðurlög yfir landamæri hafa ekki verið innleidd með fullnægjandi hætti, að því er ESA segir í tilkynningu. Leiðrétt: Tilskipunin gildir um útsenda starfsmenn á vegum erlendra fyrirtækja en ekki starfsmenn starfsmannaleiga.
Go to News Site