Fréttastofa RÚV
Einn hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um að hafa reynt að smygla fíkniefnum til landsins með Dettifossi. Tveir aðrir voru handteknir en þeim hefur verið sleppt. Þetta herma heimildir fréttastofu. Lögreglan verst allra fregna af málinu. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið sé með mál til rannsóknar en hann geti lítið tjáð sig að svo stöddu. Dettifoss.Aðsend / Eimskip
Go to News Site