Collector
25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi | Collector
25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi
Fréttastofa RÚV

25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi

Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur. Innstreymi kviku er hægt en stöðugt, að því er fram kemur í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands. Samkvæmt líkanreikningum hafa um 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Þetta er mesta magn sem mælst hefur frá upphafi eldvirkninnar á Sundhnúksgígaröðinni. Meðan kvika safnast áfram fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina. Það gæti leitt til eldgoss. Samkvæmt Veðurstofunni þarf að gera ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Go to News Site